Kompás
Hvalveiðibærinn Taiji
bæ á suðurströnd Japans sem heitir Taiji. Þetta er
hvalveiðibær Japana, en á þessu ári er því fagnað að 400 ár eru
skipulagðar hvalveiðar hófust í bænum. Við erum að vinna að
fréttaskýringu um hvalveiðar Íslendinga og notum tækifærið til
skoða menningu Japana hvað varðar hvalveiðar. Hefðirnar eru
sterkari hér í Japan, heldur en nokkru sinni á Íslandi og
úrvalið af kjöti sína sögu. Í bænum búa 3500 manns og það
lítill bær í þessu 126 milljóna manna landi. Allsstaðar eru
eða styttur af hvölum og bryggjurnar undirlagðar af
Mjög merkilegur staður, en saga hans verður sögð í Kompási þann
Ferðin til Taiji var skrautleg út af fyrir sig. Við ákváðum að
lestarkerfið til að komast á staðinn. Þurftum fyrst að komast
hótelinu á Yokohama lestarstöðina. Þaðan fórum við með
hraðlestinni til Osaka, en lestin fer á allt að 300 km hraða.
vorum við heppnir, fengum ekki sæti þannig að við máttum dúsa
gólfinu í tæpa þrjá tíma með sushi og vatn í fanginu.
upplifun samt. Frá Osaka tók við fjögurra tíma lestarferð með
Railways á stað sem heitir Kushimoto. Þá þurftum við aftur að
um lest sem fór til Taiji. Þar tók á móti okkur Hayito sem
okkur um staðinn, útvegaði okkur viðtöl, kom okkur í samband við
og þýddi fyrir okkur. Frábær náungi sem hefur lært sögu hvalveiða
Kompás og Eddan
umslaginu á Eddunni í fyrrakvöld. Kompás glumdi í eyrunum og eftir
að hafa kysst konuna og faðmað Sigmund Erni tók við gangan upp á
svið. Hélt það væri erfiðara að feta þennan gang - upp á sviðið til
að taka við verðlaununum fyrir Sjónvarpsþátt ársins. Mikil
viðurkenning á brjálæðislega mikilli vinnu. Það er svo ótrúlega
margt sem snýr að þáttagerð sem þessari. Deadline í hverri viku og
allt þarf að ganga upp. Og það eru ótrúlega margir sem koma að
Kompási fyrir utan ritstjórn, fréttamenn og framleiðanda. Ég ætla
að nota tækifærið og þakka fólkinu sem kemur nálægt þættinum;
Einari Árnasyni kvikmyndatökumanni sem hefur verið með okkur frá
upphafi. Hann er kominn með Kompáshreyfingarnar í myndavélina og
kann öll trikkinn. Hann var því miður ekki á Eddunni - var í New
York. Tinnu Magnúsdóttur sem aðstoðaði okkur við dagskrárgerð um
langt skeið. Hún er núna að skrifa lokaritgerð í margmiðlunarfræði
við danskan háskóla. Konna sem býr til stiklurnar fyrir okkur -
alltaf jafn vel gerðar. Róberti Marshall fyrir frábærar hugmyndir
og ferskan andblæ inn í þáttinn meðan hann var yfirmaður NFS. Hann
og Þór Jónsson eru mínir mentorar í fréttamennskunni, eins og ég
sagði í þakkarræðunni í gærkvöldi. Ég vil líka þakka skriftunum á
NFS, Oddi Ástráðssyni fyrir upptökurnar, öllum fréttaklippurunum,
öllum myndatökumönnunum á NFS og öllu fólkinu sem hefur verið að
Það er frábært að fá gott tips frá fólkinu út í bæ - því það tips
getur orðið að stórfrétt - stórmáli. Munið því netfang þáttarins;
kompas@365.is. Annars blogga ég næst frá Japan, en ég og Ingi
Ragnar framleiðandi erum á leiðinni þangað að gera fréttir. Meira